|
Ísland er með hæstu skráða CO2 meðaltalslosun fólksbíla af öllum löndum á hinu evrópska efnahagssvæði. Þrátt fyrir að meðaltalslosunin hafi lækkað á síðustu árum hefur heildarlosun aukist. Að óbreyttu er Ísland langt frá að geta uppfyllt þau langtímamarkmið sem sett hafa verið um losun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum. Til að bregðast við þessari þróun ber að mati starfshóp fjármálaráðuneytisins að grípa til ráðstafana sem eru í samræmi við alvarleika málsins.  Stærri bílar, öflugri vélar og fleiri þættir gera það að verkum að útblástur vegna bílaumferðar á Íslandi hefur aukist jöfnum höndum. Nam útblásturinn um 750 þúsund tonnum á árinu 2006. Kaupgleði hefur einkennt Íslendinga og er fjöldi bíla á hvern íbúa hér á landi með því mesta sem gerist í heiminum, eða um 665 bílar pr. 1000 íbúa (tölur frá 2006). Fólksbílar hér á landi eru rúmlega 200 þúsund talsins en heildarfjöldi ökutækja liðlega 230 þúsund.
Margháttuð mengun fylgir notkun bíla og er bruni jarðefnaeldsneytis einungis einn þáttur í því. Yfirvöld á hverjum tíma hafa reynt að stemma stigu við eða hafa áhrif til minnkunar þeirra þátta og ýmislegt hefur áunnist. Bent skal sérstaklega á upplýsingar um mengun tengdum bílum á vef Umhverfisstofnunar . Einnig um notkun jarðefnaeldsneytis á vef Orkuseturs .
Við bruna jarðefnaeldsneytis eins og olíu og bensíns, sem að stærstum hluta er kolefni, myndast mikið magn koltvíoxíðs (CO2) en koltvíoxíð er helsta gróðurhúsa-lofttegundin. Önnur mengun sem fylgir bílaumferð er svifryk, sýrumyndandi efni (SO2, NOx) og forefni ósons (NOx, NMVOC, CO).  Umhverfisstofnun og Umhverfissvið Reykjavíkur standa að mælingum á loftgæðum á höfuðborgarsvæðinu. Þau eru mæld á fjórum stöðum, við Grensásveg, í Húsdýragarðinum, á Keldnaholti og við Hvaleyrarholt. Sjá nánar loftgæðamælingar Umhverfisstofnunar.
Uppsetning heildstæðs kerfis, Plöggsins stuðlar að rafbílavæðingu og vill 2012 Nýtt upphaf leggja sitt af mörkum til minni mengunar. |