|
|
|
|
|
|
Tesla Motors verksmiðjurnar í Kaliforníu hafa fengið staðfestingu frá bandarískum yfirvöldum um að þau muni lána fyrirtækinu 465 milljónir bandaríkjadala eða sem nemur tæpum 60 milljörðum íkr. Þessi lán veitir bandaríkjastjórn þeim bílaframleiðendum sem hyggjast framleiða umhverfisvæna bíla og falla undir mjög strangar kröfur sem gerðar eru til þeirra. Er ætlunin að nota 365$ milljónir af þessari upphæð til að byggja samsetningarverksmiðju fyrir Tesla Módel S bílinn. Mun þessi verksmiðja ein skapar um 1.000 ný sérhæfð störf. Fyrir fáum vikum síðan keypti þýska Daimler Bens samsteypan 10% hlut í Tesla fyrirtækinu og samhliða því var gerður samstarfssamningur milli þessara tveggja fyrirtækja. Gengur hann út á að Daimler muni aðstoða Tesla við uppbyggingu þessarar verksmiðju en að auki mun Daimler hefja framleiðslu á rafbílum árið 2012 með rafbíla tækni frá Tesla. Restin af láninu eða 100$ milljónir mun verða notað til að byggja aðra verksmiðju þar sem drifrásin í Tesla bílana verður smíðuð. Í þessari verksmiðju verður jafnframt byggðar drifrásir fyrir aðra rafbílaframleiðendur sem hyggjast fara í fjöldaframleiðslu. Um 650 ný störf verða til í þessari verksmiðju. Heimild: Tesla Motors |