|
|
|
|
|
|
2012 - Nýtt upphaf er verkefni á vegum Northern Lights Energy. Markmiðið er að bílafloti landsmanna verði að stærstum hluta knúinn áfram af raforku fyrir árslok 2012.
Verkefnið gengur út á að setja upp kerfi sem gefur Íslendingum kost á að rafbílavæðast á hagkvæman raunhæfan hátt. Til að ná þessu markmiði verður sett upp heildstætt kerfi, Plöggið sem samanstendur af eftirfarandi þáttum:
 Veitir aðgang að kerfinu um allt land. Áskrift veitir eiganda rafbíls það öryggi sem aðrir bíleigendur hafa hvað varðar aðgengi að orku fyrir bílinn sinn. 
 Notendur hafa aðgang að víðfeðmu neti Rafhleðslupósta fyrir rafbíla. Hleðslukostnaður er hluti af áskriftargjaldinu og greiðist ekki sérstaklega. Rafhleðslupóstar verða staðsettir um land allt. Meðal keyrsla á heimilisbíl á Íslandi er milli 35-40km á dag og dugar því venjuleg hleðsla á rafbíl 4-10 sinnum þá vegalegnd.
 Vanti hinsvegar aukahleðslu (djús) fyrir rafbílinn þá eru Hraðhleðslupóstarnir ætlaðir fyrir það. Hraðhleðslupóstar verða staðsettir að jafnaði á þeim stöðum sem henta vel fyrir neytendur. Það tekur að jafnaði 10 - 30 mínútur að hlaða í Hraðhleðslupósti og er þá um að ræða 50-95% hleðslu.
 Öflugt netkerfi heldur utanum alla notkun viðskiptavinarins í kerfinu, veitir aðgang, stýrir hleðslunni og fleira.
2012 Nýtt upphaf hvetur alla til samstarfs við að ná þessu markmiði. |